Söguskoðun

35 - Nýja Róm

March 24, 2021 Söguskoðun hlaðvarp Season 3 Episode 12
Söguskoðun
35 - Nýja Róm
Show Notes Chapter Markers

Þegar Vestrómverska ríkið féll með Rómarborg árið 476 e. kr. lifði Austrómverska ríkið áfram í mörg hundruð ár. Í raun lifði ríkið allt fram til ársins 1453 þegar borgin Konstantínópel, Nýja Róm, féll í hendur Tyrkja. Oft hefur Austrómverska ríkið, eða Býsanska ríkið, fallið í skuggann í sögunni. Gibbon kallaði Býsanska ríkið eina samfellda sögu spillingar og niðurifs - eins konar hægan dauða í þúsund ár.

Í þættinum í dag ræða Ólafur og Andri um hugtakanotkun um þetta ríki. Er hugtakið "býsanskur" gildishlaðið og neikvætt? Afhverju köllum við ríkið ekki bara Rómarveldi, eða Rómaníu, eins og íbúar þess kölluðu landið sitt sjálf allt frá falli Rómar 476 fram að falli Nýju Rómar 1453?

Umræðuefni dagsins
Hvað var Austrómverska ríkið?
Konstantínópel: Nýja Róm
Hvers vegna hélt Austrómverska ríkið velli?
Býsanska ríkið eða Rómarveldi?
Um hugtakið "býsanskur"