Söguskoðun

25 - Opnun Japans

September 16, 2020 Söguskoðun hlaðvarp Season 3 Episode 2
Söguskoðun
25 - Opnun Japans
Show Notes

Í ágúst var þess minnst að 75 ár eru liðin frá kjarnorkusprengingunum í Hiroshima og Nagasaki. Þrátt fyrir þessa gríðarlegu eyðileggingu er Japan eitt af fremstu iðnríkjum heims. Í þessari trílógíu er rætt um vegferð Japans til nútímans sem hófst um miðja 19. öld en sú vegferð átti eftir að leiða Japani í gegnum hraða iðnvæðingu og nútímavæðingu, en einnig hervæðingu og heimsvaldastefnu sem endaði með gríðarlegum hörmungum í Japan, Kóreu, Kína, Suð-Austur Asíu og á Kyrrahafi. 

Í þessum þætti ræða Ólafur og Andri um sögu Japans fram að fyrri heimsstyrjöld, með áherslu á stríð Rússa og Japana 1904-1905. Einnig eru rædd álitamál sem þetta málefni snertir, eins og eurosentrisma og hugtakið nútímavæðing.

Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér:
Soguskodun.com | soguskodun@gmail.com
Einnig á Facebook og Youtube.
Hægt er að styrkja hlaðvarpið með því að bjóða okkur upp á kaffibolla.