Söguskoðun

24 - Landnám Íslands

August 25, 2020 Söguskoðun hlaðvarp Season 3 Episode 1
Söguskoðun
24 - Landnám Íslands
Show Notes

Hlaðvarpið Crymogæa snýr aftur úr sumarfríi undir nýju og öllu þægilegra nafni í framburði og ritun: Söguskoðun!

Í þessum þætti ræða þeir félagar Andri og Ólafur um landnám Íslands sem mætti ætla að væri jafnvel einn mikilvægasti atburður Íslandssögunnar. Rætt er um ritheimildir og fornleifarannsóknir um landnámið og alls kyns kenningar og aðferðir aðrar sem fjalla um þetta mikla málefni. Töluverðu púðri er rætt í umræður um heimildagildi Landnámu, en það virðist vera heitasta debattið í þessum kima íslenskrar sagnfræði.

Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér:
Soguskodun.com | soguskodun@gmail.com
Einnig á Facebook og Youtube.
Hægt er að styrkja hlaðvarpið með því að bjóða okkur upp á kaffibolla.