Söguskoðun

23 - Um valdarán Napóleons

June 22, 2020 Söguskoðun hlaðvarp Season 2 Episode 15
Söguskoðun
23 - Um valdarán Napóleons
Show Notes

Í þessum síðasta þætti Crymogæu fyrir sumarfrí ræða Ólafur og Andri áfram um Napóleon þar sem frá horfði þegar hann snéri heim frá Egyptalandi árið 1799 og hrifsaði völdin í Frakklandi. Rætt er um valdaránið þann 18. þokumánaðar (Brumaire), Napóleonsstyrjaldirnar og stofnun franska keisaradæmisins. Þá er einnig rætt um sagnaritun um þetta tímabil og kenningar marxista og síðari tíma byltingarmanna um bónapartismann. Var stofnun keisaradæmisins 1804 hápunktur frönsku byltingarinnar eða endalok hennar?

Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér:
Soguskodun.com | soguskodun@gmail.com
Einnig á Facebook og Youtube.
Hægt er að styrkja hlaðvarpið með því að bjóða okkur upp á kaffibolla.