Söguskoðun

36 - Genghis Khan og veldi Mongóla

April 03, 2021 Season 3 Episode 13
Söguskoðun
36 - Genghis Khan og veldi Mongóla
Show Notes Chapter Markers

Hirðingjaþjóðir Mið-Asíu hafa alltaf spilað rullu í sögu Evrópu og Austur Asíu beint og óbeint. Hræringar þeirra hafa komið af stað breytingum í báðum heimshlutum sem lengst av voru ótengdir, og einnig hafa þessar þjóðir verið brú á milli heimshlutanna þar sem viðskipti og sjúkdómar fengu að breiðast út. En steppuþjóðirnar hafa þó alltaf haft á sér ógnvænlega ímynd í Evrópu og Asíu og skapað mikinn ótta.  Kínverjar byggðu heimsins stærsta múr til að verjast Mongólum, og Húnar fóru um Rómarveldi rænandi og ruplandi. 

Fáir menn hafa verið jafn alræmdir fyrir grimmd og skelfingu í sögunni eins og Genghis Khan, hinn mikli leiðtogi Mongóla á 13. öld.  Honum tókst að sameina steppuþjóðir Mongólíu og setti á legg eitt stærsta samhangandi veldi allra tíma (næst stærst á eftir breska heimsveldinu að faltarmáli). Ríki Mongóla náði undir lok 13. aldar frá Kyrrahafsströnd Kóreu í austri og alla leið til Úkraínu og Tyrklands í vestri.

Í þættinum í dag fræðir Ólafur Hersir Andra og hlustendur um þetta mikla veldi, og um manninn sem stofnaði það. 

Um skrift og letur
Bókin sem Ólafur var að lesa
Inngangur að Genghis Khan
Frumheimildir um Mongóla
Genghis Khan sameinar Mongóla
Um grimmd Mongóla
Um ríki Mongóla
Arftakar Genghis Khan
Mongólar í sögulegu minni