Söguskoðun

61 - Deus vult! Fyrsta krossferðin II. hluti

January 30, 2023 Season 5 Episode 8
Söguskoðun
61 - Deus vult! Fyrsta krossferðin II. hluti
Show Notes Chapter Markers

 Krossferðirnar eru mikilvægur þáttur í sögu Evrópu á hámiðöldum.  Í þættinum í dag ræða Ólafur og Andri aðdraganda og gang fyrstu krossferðarinnar 1096-1099. Þá héldu tugir þúsunda kaþólskra pílagríma, fótgönguliða og riddara til Anatólíu til að létta undan létta undan Alexíusi I rómarkeisara í baráttunni við Tyrki, en síðan til Jerúsalem, þar sem krossfararnir stofnuðu krossfararíki í borginni heilögu. 

Í síðari hluta þessarar yfirferðar ræðum við atburði fyrstu krossferðarinnar eftir fall Antíokkíu þegar Austrómverjar yfirgefa krossfarana og þeir stofna sjálfstæð krossfararíki við botn Miðjarðarhafs.

Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér:
Soguskodun.com | soguskodun@gmail.com
Einnig á Facebook og Youtube.
Hægt er að styrkja hlaðvarpið með því að bjóða okkur upp á kaffibolla.

Þáttaskil við Antíokkíu
Umsátrið um Jerúsalem
Konungsríkið Jerúsalem