Söguskoðun
Andri Jónsson og Ólafur Hersir Arnaldsson ræða sögu og sagnfræðileg málefni á léttu nótunum.
Söguskoðun
93 - Hugmyndasaga, PTSD og andleg heilsa
Hlaðvarpsmenn komu saman í dag til að ræða áfallastreituröskun (PTSD) og hugmyndasögulegan bakgrunn þess fyrirbæris í tengslum við hernað, og önnur tengd málefni.
Í heimildum koma fyrir frásagnir af hegðun í tenglsum við hernað sem fræðimenn vilja stundum tengja við áfallastreituröskun og aðra nútímakvilla. Einnig má nefna heimþrá, nostalgíu, dansveiki, tunglsýki og suð-austur-asískar púkaofsóknir sem dæmi um einkenni sem kunna að hafa verið andlegir sjúkdómar samkvæmt okkar daga skilgreiningu.
Hlaðvarpið Söguskoðun má nálgast hér:
Soguskodun.com | soguskodun@gmail.com
Einnig á Facebook og Youtube.
Hægt er að styrkja hlaðvarpið með því að bjóða okkur upp á kaffibolla.